Á aðalfundi Ungmennafélags Selfoss sem fram fór í félagsheimilinu Tíbrá þann 4. apríl sl. skrifuðu Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Árborgar, og Viktor S. Pálsson formaður Umf. Selfoss, undir viljayfirlýsingu um að uppbygging íþróttamannvirkja á Selfossvelli verði í samræmi við tillögur Alark arkitekta sem hafa verið lagðar fram til kynningar í bæjarstjórn Árborgar og aðalstjórn Ungmennafélags Selfoss.
Fyrsti áfangi uppbyggingarinnar felur í sér hálft yfirbyggt fjölnota íþróttahús með aðstöðu fyrir frjálsar íþróttir og knattspyrnu auk þess sem göngustígur liggur hringinn í kringum knattspyrnuvöllinn. Fram kom á aðalfundinum að stefnt er að því að bjóða fyrsta áfanga út í maí.
Það er von beggja aðila að uppbyggingin muni ganga vel á næstu árum en þótt fyrsti áfangi sé kominn af stað eru aðilar meðvitaðir um að eftir er að tímasetja næstu áfanga en sú vinna verði unnin á næstu mánuðum og lögð fyrir bæjarstjórn haustið 2019.