Að kvöldi skírdags, fimmtudaginn 18. apríl nk., fer fram í Rangárhöllinni á Hellu stórsýning sunnlenskra hestamanna. Sýningin mun einkennast af léttleika og skemmtun og verður boðið upp á eitthvað fyrir alla hestaáhugamenn, unga sem aldna. Hross og knapar koma af öllu landinu og eru á öllum aldri. Meðal atriða eru hátt dæmdir stóðhestar og hryssur, afkvæmahestar, ræktunarbússýningar, hestvagnakeppni, skeiðkeppni og fleira sem gleður augað. Húsið verður opnað kl. 19:00 og sýningin hefst kl. 20:00. Forsala aðgöngumiða er á Tix.is.
Stórsýning sunnlenskra hestamanna á skírdag
![hestasyning](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2019/04/hestasyning.jpg?resize=888%2C523&ssl=1)