![Atli ráðinn sviðsstjóri mannvirkja- og umhverfissviðs Árborgar Atli ráðinn sviðsstjóri mannvirkja- og umhverfissviðs Árborgar](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/04/arborg_hringtorg.jpg?fit=768%2C512&ssl=1)
![Atli Marel Vokes](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2019/04/Atli-Vokes.jpg?resize=441%2C338&ssl=1)
Í tilkynningu frá Sveitarfélaginu Árborg kemur fram að Atli Marel Vokes hafi verið ráðinn sviðsstjóri mannvirkja- og umhverfissviðs Árborgar. Atli er með B.Sc. í byggingartæknifræði frá VIA University College í Danmörku og er húsasmíðameistari með skráð gæðavottunarkerfi. Atli uppfyllir afbragðs vel allar kröfur og hæfniviðmið sem sett voru fram í auglýsingu um starfið, segir í tilkynningu.
Atli hefur átt farsælan starfsferil sl. 6 ár sem deildarstjóri og staðgengill skrifstofustjóra hjá skrifstofu reksturs og umhirðu borgarlandsins, á umhverfis og skipulagssviði Reykjavikurborgar.
Í störfum sínum hefur Atli öðlast mikla reynslu af áætlanagerð, útboðsmálum, innkaupum, verkefnastjórnun, teymisvinnu og útfærslu og innleiðingu lausna í tækni- og snjallvæðingu. Hann hefur tekið þátt í þróun nýs ábendingarvefjar borgarinnar, auk innleiðingu annarra snjalllausna á sviðinu. Atli hefur borið ábyrgð á rekstri og starfsmannamálum í vesturhluta borgarinnar og þar falla undir m.a. þrjár hverfa- og verkbækisstöðvar. Í störfum hans hefur reynt á samstarf við fjölda starfsfólks annarra deilda borgarinnar og fjölmarga hagsmunaaðila.