-6.6 C
Selfoss

Kynningar- og samráðsfundir um samstarfsverkefnið GróLind

Vinsælast

Árið 2017 hófst samstarfsverkefni Landssamtaka sauðfjárbænda, Landgræðslunnar, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og Bændasamtaka Íslands um að vakta og meta ástand gróður- og jarðvegsauðlinda landsins. Verkefnið fékk nafnið GróLind og er markmið þess að gera reglulega heildarmat á ástandi gróður- og jarðvegsauðlinda landsins og þróa sjálfbærnivísa fyrir nýtingu auðlindanna. Þekking á ástandi gróður- og jarðvegsauðlindanna og skilningur á því hvaða þættir hafa áhrif á ástandið er forsenda fyrir ábyrgri nýtingu.

Umsjón verkefnisis er á höndum Landgræðslunnar en einnig er starfandi fimm manna faghópur undir forustu Landssamtaka sauðfjárbænda sem tryggir að fagleg vinnubrögð séu stunduð í hvívetna. Verkefnið er fjármagnað til 10 ára í gegnum búvörusamningana. Á fyrstu tveimur árum verkefnisins hefur verið unnið að þróun þess m.a. að ákvarða hvaða vistkerfisþætti skulu vakta, þróa ástandsmat á auðlindunum og byggja upp samstarfsnet verkefnisins. Einnig hefur verið unnið að kortlagningu beitilanda á landsvísu og atferli sauðfjár á afréttum kannað með staðsetningartækjum.

Grunnurinn að því að GróLind verið árangursríkt verkefni er gott samstarfi við alla hagsmunaaðila, m.a. bændur og aðra landnotendur, fjallskilanefndir, sveitarfélög, háskóla, opinberar stofnanir og fyrirtæki. Með góðu samstarfi er tryggt að verkefnið nýtist sem best til að bæta landnotkun; það sé byggt á traustum vísindalegum grunni og unnið á skilvirkan hátt.

Nú á vormánuðum eru haldnir kynningar- og samráðsfundi um GróLind um land allt. Á fundunum er verkefnið kynnt og kallað eftir hugmyndum og athugasemdum um framkvæmd þess og þróun.

Búið er að funda á Vesturlandi og hluta Vestfjarða, Norðvesturlandi, Skaftafellssýslum og Rangárvellassýslu. Fundur fyrir Árnessýslu verður haldinn á Brautarholti á Skeiðum þann 8. apríl. Vonast starfsfólk Landgræðslunnar að fólk sjái sér fært að mæta, fræðist og taki þátt í þróun verkefnisins.

Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á www.grolind.is. Þangað er einnig hægt senda fyrirspurnir eða athugasemdir um verkefnið.

Nýjar fréttir