Heilsustofnun í Hveragerði og Háskólinn í Vermont í Bandaríkjunum hófu samstarf fyrir þremur árum og nú, annað árið í röð, komu tíu nemar í sjúkraþjálfun og íþróttafræðum í heimsókn ásamt tveimur prófessorum, Karen Westervelt og Susan Kasser. Þau dvöldu í eina viku og fengu fræðslu og kennslu um þær meðferðir sem nýttar eru við endurhæfingu á Heilsustofnun, tóku þátt í ýmsum hóptímum og fylgdust með dvalargestum í mismunandi meðferðum. Einnig héldu þau skemmtilegt erindi fyrir starfsfólk og dvalargesti um Vermontfylki í Bandaríkjunum. Auk þess ferðuðust þau um suðvesturhorn landsins, fóru í fjallgöngu, Gullna hringinn og heimsóttu rannsóknasetur og lækningalind Bláa lónsins.
Heimsóknin heppnaðist vel og er mikill áhugi fyrir áframhaldandi samstarfi við Heilsustofnun á komandi árum.