![Heilsueflandi samfélag í Árborg Heilsueflandi samfélag í Árborg](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/09/arborg.jpg?fit=696%2C464&ssl=1)
Bæjarráð samþykkti á fundi sínum sem haldinn var 15. mars l. að skipa stýrihóp Sveitarfélagsins Árborgar um verkefnið Heilsueflandi samfélag. Fulltrúar í hópnum eru eftirfarandi: Guðmundur Kr. Jónsson, fulltrúi íþrótta- og menningarnefndar, eldri borgari, Páll Sveinsson, fulltrúi úr grunnskólum Árborgar, Ásrún Aldís Hreinsdóttir, fulltrúi úr Ungmennaráði, Díana Gestsdóttir, fulltrúi búsettur á Selfossi og tengd heilsueflandi leikskólum og Esther Guðmundsdóttir, fulltrúi búsettur á Eyrarbakka. Bragi Bjarnason verður starfsmaður hópsins.