![Umferðarslys á Eyrarbakkavegi Umferðarslys á Eyrarbakkavegi](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/07/Lögregla.jpg?fit=768%2C512&ssl=1)
Umferðarslys varð á Eyrarbakkavegi í dag á milli klukkan þrjú og fjögur skammt frá Þorlákshafnarvegi. Þetta kom fram á Tvitter-síðu Vegagerðarinnar seinni partinn í dag. Veginum var lokað um tíma og umferð beint um hjáleið um Selfoss. Ekki er vitað um slys á fólki. Krapi og hálka er á vegum víða á Suðvesturlandi vestan Þjórsár.