![Sýningin Flæði opnar í Listagjánni á morgun Sýningin Flæði opnar í Listagjánni á morgun](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2019/03/erna-ludviksd2.jpg?fit=768%2C590&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2019/03/erna-ludviksd1.jpg?resize=300%2C300&ssl=1)
Ný sýning, sem ber heitið Flæði, eftir Ernu Lúðvíksdóttur er næsta sýning í Listagjánni í Bókasafni Árborgar á Selfossi. Sýningin opnar á morgun laugardaginn 9. mars.
Erna er fædd á Akranesi en flutti ung austur fyrir fjall. Hún bjó um tíma í Fljótshlíðinni en kom þaðan á Selfoss og bjó þar í allmörg ár. Hún er sjálfmenntuð í myndlist og vinnur yfirleitt í olíu. Málverkin fæðast á misjafnan hátt en yfirleitt segist Erna bara byrja og svo flæði myndirnar fram „Ég hef mikla ánægju af að mála og takast á við þær áskoranir sem upp koma og þarf að leysa úr“ segir hún.
Sýningin sem er fyrsta einkasýning Ernu er jafnframt sölusýning.
Allir eru hjartanlega velkomnir á opnunina laugardaginn 9. mars kl. 14:00.