Í gær, 6. febrúar var dagur leikskólans. Að því tilefni var boðið upp á pönnukökur á leikskólanum Bergheimum í Þorlákshöfn og haldið diskóball fyrir alla á leikskólanum.
Hér að neðan eru nokkrar myndir frá skemmtuninni. Pönnukökurnar runnu ljúflega niður ein af annarri og diskóljósin heilluðu ungu kynslóðina.