Í dag er „Einn-einn-tveir dagurinn“, en hann er til að minna okkur á hjálparsímann 112. Í tilefni þess verður opið hús hjá Hjálparsveit skáta Hveragerði að Austurmörk 9 kl. 20–21.
Allur búnaður sveitarinnar verður til sýnis og þar á meðal nýr Toyota Land Cruiser jeppi sem sveitin fékk til notkunar í byrjun mánaðarins. Um er að ræða afar fullkominn jeppa, 42″ breyttan með öllum þeim búnaði sem góður björgunarsveitarbíll þarf að búa yfir. Boðið verður upp á frostpinna frá Kjörís, kaffi og kleinur. Allir eru velkomnir.