Fjölheimar á Selfossi taka um þessar mundir upp þráðinn með hina vinsælu hádegisfyrirlestra. Næsti fyrirlestur verður á morgun fimmtudaginn 31. janúar. Í vetur verða það meistaranemar sem nýta sér lesaðstöðuna í Fjölheimum sem kynna áhugaverð rannsóknarverkefni sín. Tinna Björk Helgadóttir ríður á vaðið og kynnir verkefnið Frístundalæsi: Hvernig má nýta tíma á frístundaheimilum til að efla læsi?
Eins og áður mun Birta starfsendurhæfing hafa til sölu léttan hádegisverð en lysthafendur eru beðnir að skrá sig á netfangið fjolheimar@gmail.com.