![Gönguskíðabraut á golfvellinum í Gufudal Gönguskíðabraut á golfvellinum í Gufudal](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2019/01/Screenshot-2019-01-29-at-10.57.31.png?fit=703%2C947&ssl=1)
Hratt var brugðist við fyrirspurnum um troðna gönguskíðabraut í Hveragerði. Einar Lyng hjá GHG og Hafsteinn Davíðsson hjá Kjörís brugðust hratt við bón bæjarstarfsmanna og er búið að troða braut sem byrjar á 6. braut golfvallarins í Gufudal.
Brautin telur um 600 metra og er farinn hringur frá sjöttu flöt og á fjórðu braut að sjöttu og sjöundu og upp með áttundu braut meðfram Varmá og Sauðá að sjöttu flöt aftur.
Þúsund þakkir til þeirra félaga. Nú er tilvalið að skella á sig gönguskíðunum í blíðunni og stunda þessa skemmtilegu vetraríþrótt.