Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari í handknattleik tilkynnti nú fyrir skömmu landsliðshóp Íslands sem tekur þátt í heimsmeistaramótinu sem fram fer í Þýskalandi og Danmörku á næstunni. Í hópnum sem saman stendur af sextán leikmönnum og einum varamanni eru fimm leikmenn sem annað hvort leika með liði Selfoss eða hafa leikið með því.
Í hægra horninu er Bjarki Már Elísson, leikmaður Füchse Berlín. Hann var í Handboltaakademíu Selfoss og lék um tíma með liði Selfoss.
Á miðjunni er Elvar Örn Jónsson sem nú leikur með liði Selfoss og auk þess Haukur Þrastarson sem er sautjándi maður liðsins.
Í hægri skyttunni eru þeir Ómar Ingi Magnússon, leikmaður Álaborgar, og Teitur Örn Einarsson, leikmaður Kristianstad. Báðir léku þeir með liði Selfoss.
Janus Daði Smárason, leikmaður Álaborgar og fyrrum Selfoss, var í leikmannahópnum en var ekki valinn í sautján manna hópinn.
Þess má geta að allir ofantaldir leikmenn hafa verið í Handboltaakademíu Selfoss.
Þeir Guðjón Valur Sigurðsson og Aron Rafn Eðvarðsson voru ekki valdir í hópinn vegna meiðsla.
Þá má einnig bæta við að Selfyssingurinn Jón Birgir Guðmundsson er sjúkraþjálfari liðsins.
Fyrsti leikur íslenska liðsins er gegn Króatíu föstudaginn 11. janúar kl. 17:00.