![Fyrsta bók ársins hjá Bókaútgáfunni Sæmundi – útgáfuhóf Fyrsta bók ársins hjá Bókaútgáfunni Sæmundi – útgáfuhóf](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2019/01/Raudur-madur-Svartur-madur-WEB.jpg?fit=432%2C652&ssl=1)
Verðlaunahöfundurinn Kim Leine mætir á útgáfuhóf í Lækjargötuhúsi á Árbæjarsafni fimmtudagskvöldið 3. janúar kl. 20. Þar er fagnað fyrstu bók Sæmundar á nýju ári, Rauður maður/Svartur maður sem Leine sendi frá sér í fyrra og birtist hér í glæsilegri þýðingu Jóns Halls Stefánssonar.
Í þessum öðrum hluta Grænlandstrílógíu sinnar leitar Kim Leine fanga aftur til 18. aldar, í nýlendustofnun Dana á Grænlandi.
Særingamaðurinn Aappaluttoq, Rauður, bjargar lífi fársjúks sonar með því að koma honum í fóstur hjá trúboðanum Hans Egede og Gertrud eiginkonu hans. Þvert gegn vilja Rauðs er drengnum aldrei skilað því maðurinn í svörtu hempunni ákveður að skíra drenginn og halda honum hjá sér.
Hér er sagt frá upphafi kristniboðs og nýlenduvæðingar á Grænlandi, lygilegum tildrögum, ævintýralegri framkvæmd og hræðilegum afleiðingum, bæði fyrir nýlendubúana dönsku og Grænlendinga sjálfa. Stílsnilld Leine er söm við sig, atburðarásin og lýsingarnar eru hér ennþá magnaðri en í fyrstu sögulegu skáldsögu hans, Spámönnunum í Botnleysufirði. Hér fer höfundurinn þó nær skjalfestum veruleika því flestar hinna fjölmörgu eftirminnilegu persóna eiga sér sögulegar fyrirmyndir og atburðirnir sem eru hvað ótrúlegastir áttu sér stað í raun og veru.
Rauður maður/Svartur maður er stórvirki í öllum skilningi, saga um árekstur ólíkra menningarheima og baráttu við hrikaleg náttúruöfl, saga um feður og syni, dauða og drykkjuskap, sturlun og stærilæti, guðstrú og glötun, uppgjöf og uppljómun sálarinnar.