![Karlakór Selfoss flytur lagið Jólin alls staðar Karlakór Selfoss flytur lagið Jólin alls staðar](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/12/maxresdefault-4.jpg?fit=768%2C432&ssl=1)
Dfs.is brá sér á hátíðlega tónleika Karlakórs Selfoss sem haldnir voru í Selfosskirkju nú á dögunum. Þéttskipað var í salnum af fólki á öllum aldri. Dagskráin var í alla staði hin vandaðasta og þétt skipuð jólalögum, bæði gömlum „jólastandördum“ og öðrum nýrri og ekki síðri, m.a. úr smiðju þeirra Baggalútsmanna. Eitt þeirra laga sem flutt var, og er í spilaranum hér að ofan nefnist „Jólin alls staðar“. Það tilheyrir frekar fyrri tíð en margir kannast við lagið í flutningi systkinanna Ellýar- og Vilhjálms Vilhjálms.
Við komum til með að birta sitthvað fleira frá tónleikunum yfir hátíðarnar.