![Snjókall í sundi Snjókall í sundi](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/12/Snjókall.jpg?fit=768%2C1024&ssl=1)
Hann er lukkulegur snjókarlinn sem stendur keikur í móttöku Sundlaugar Selfoss og tekur á móti gestum. Starfsmenn týndu til notuð kaffimál sem sundlaugargestir höfðu sett í tunnuna, hreinsuðu og heftuðu saman. Innanhúss var svo til forláta jólahúfa, gulrótarlaga fjölnotapoki og jólasería sem logar inni í karlinum. Í samtali við starfsmann í afgreiðslunni kom fram: „Okkur hér langaði að sýna hvað hægt væri að gera ef maður lætur sér detta eitthvað skemmtilegt í hug. Hann blessaður hefur vakið mikla lukku meðal barna og fullorðinna. Við erum ekkert að vaða út í búð og kaupa eitthvað.“