Slökkviliðsmenn frá Brunavörnum Árnessýslu á Selfossi voru boðaðir út rétt fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi vegna elds í ruslagámi við Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi.
Nokkur eldur var í gámnum þegar slökkvilið mætti á staðinn en greiðlega gekk að slökkva eldinn. Líklegt er talið að um íkveikju hafi verið að ræða.