![Leiðinda bál með suðurströndinni síðdegis á morgun Leiðinda bál með suðurströndinni síðdegis á morgun](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/12/Screen-Shot-2018-12-09-at-13.50.59.png?fit=750%2C508&ssl=1)
Í athugasemd veðurfræðings á Veðurstofu Íslands „gengur í suðaustanhvassviðri eða -stom síðdegis á morgun. Jafnvel staðbundið rok með rigningu á láglendi, en snjókomu á heiðum og fjallvegum um landið sunnan- og vestanvert. Varasöm akstursskilyrði þar.“
Eftirfarandi gular viðvaranir koma fram á Veðurstofunni fyrir seinnipartinn á morgun:
Hellisheiði og Þrengsli: Suðaustan 18-23 m/s og snjókoma eða skafrenningur á Hellisheiði og í Þrengslum með mjög takmörkuðu skyggni. Mikil hálka á vegum. Vegafrendur fari varlega.
Eyjafjöllin og nágrenni: Suðaustan 18-25 m/s, hvassast undir Eyjafjöllum með vindhviður að 45 m/s. Varasamt ökutæjum sem eru viðkvæm fyrir vindi.
Altént er rétt að fylgjast vel með veðrinu næsta sólarhringinn og haga ferðum í samræmi við það.
Nánari upplýsingar má fá á: Veðurstofunni og Vegagerðinni.
Frekari upplýsingum verður bætt við fréttina eftir því sem upplýsingar berast.