![Jórukórinn í jólaskapi á æfingu – tónleikar framundan Jórukórinn í jólaskapi á æfingu – tónleikar framundan](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/11/maxresdefault-3.jpg?fit=768%2C432&ssl=1)
Dfs.is leit við á æfingu hjá Jórukórnum í gærkvöldi til að koma okkur í jólaskapið. Það er ekki seinna vænna því fyrsti í aðventu er nú á sunnudaginn. Það voru hressar konur sem tóku á móti blaðamanni í jólapeysum og sungu Gloria in excelsis deo. Stífar æfingar eru þessa dagana til undirbúnings jólatónleika kórsins sem fer fram 5. desember nk. Áhugasömum er bent á að skoða viðburðinn á Facebook en hann má nálgast hér.