Nemendur í 2. bekk Vallaskóla á Selfossi fóru fyrir skömmu í gönguferð um bæinn með kennara sínum. Göngutúrinn var liður í verkefninu Gullin í grenndinni. Þar fræddust börnin m.a. um af hverju það er svona mikið „Tryggvi“ út um allt á Selfossi. Nemendur fræddust um Ölfusárbrúna og Tryggva Gunnarsson smið og bankastjóra með meiru og kennileiti honum tengdum eins og t.d. Tryggvaskála, Tryggvatorg, Tryggvagarð og Tryggvagötu.
Af hverju er svona mikið „Tryggvi“ á Selfossi?
![vallaskoli_tryggvi Nemendur í 2. bekk Vallaskóla við Tryggvaskála á Selfossi. Ljósmynd: Vallaskóli.](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/03/vallaskoli_tryggvi.jpg?resize=1000%2C563&ssl=1)