-6.6 C
Selfoss
Home Fréttir Sveitarfélagið Árborg dæmt til að greiða Gámaþjónustunni 24 milljónir

Sveitarfélagið Árborg dæmt til að greiða Gámaþjónustunni 24 milljónir

0
Sveitarfélagið Árborg dæmt til að greiða Gámaþjónustunni 24 milljónir

 

Þann 21. febrúar sl. var kveðinn upp dómur í Héraðsdómi Suðurlands, í máli Gámaþjónustunnar gegn Sveitarfélaginu Árborg. Þar er Svf. Árborg dæmt til að greiða Gámaþjónustunni tæpar 19 milljónir króna auk vaxtakostnaðar, vegna tapaðs hagnaðar af sorphirðu í sveitarfélaginu á árinu 2012. Auk þessa var sveitarfélagið dæmt til að greiða 5,5 milljónir í málskostnað.

Forsaga málsins er í stórum dráttum sú að eftir útboð sem fram fór á  sorphirðu í sveitarfélaginu ákvað meirihluti Sjálfstæðismanna að hafna þeim tilboðum sem bárust og bjóða út aftur. Svf. Árborg hafði áður verið dæmt til þess að greiða Gámaþjónustunni rúma milljón króna þar sem sveitarfélagið hafði ekki lögmætar ástæður til þess að draga útboðið tilbaka og hafna öllum tilboðum í sorphirðuna.

Í útboðsgögnum kom fram að samningstími væri fimm ár og því er hætt við að Gámaþjónustan muni sækja til sveitarfélagsins hagnað vegna fjögurra ára til viðbótar og þá gæti sú upphæð numið allt að 76 milljónum til viðbótar. Þessi  ákvörðun meirihluta Sjálfstæðismanna á sínum tíma gæti því kostað Svf. Árborg á endanum um 100 milljónir króna fyrir utan lögfræðikostnað við rekstur málsins. Í dómnum sem við hvetjum íbúa sveitarfélagsins til að kynna sér, á vefnum domstolar.is, er málið rakið mjög ítarlega og málefnalega og ekkert sem bendir til þess að önnur niðurstaða fengist ef dómsniðurstöðunni yrði áfrýjað til Hæstaréttar.

Hér að neðan eru upplýsingar um afgreiðslu málsins frá fundi bæjarráðs þann 15. desember 2011, þar sem málið er rakið og afgreiðsla þess. Í bæjarráði hafa þrír aðilar atkvæðisrétt og voru að þessu sinni tveir frá D-lista og einn frá S-lista. Síðar sama dag var málið tekið fyrir í bæjarstjórn og fór á sama veg með fimm atkvæðum meirihluta D-lista á móti fjórum atkvæðum minnihluta S-lista, B-lista og V-lista. Hin ótrúlega afgreiðsla þessa máls og gríðarleg fjárútlát Svf. Árborgar vegna dómsins eru alfarið á ábyrgð þáverandi meirihluta Sjálfstæðismanna, þeim sem þá voru og eru enn fulltrúar hans.

Fundur bæjarráðs 15. desember 2011
Liður 10. 1012096 – Útboð á sorphirðu 2011
Lagt var fram minnisblað Lögmanna Suðurlandi.
Lögð var fram eftirfarandi tillaga fulltrúa D-lista:
Bæjarráð samþykkir að hafna þeim tilboðum sem bárust í verkið Söfnun og flutningur úrgangs, moltugerð og þjónusta við gámastöð 2012–2016 þar sem færa megi rök fyrir því að gallar kunni að hafa verið á framkvæmd útboðsins.
Rétt er að benda á að kostnaður við lægsta tilboð er yfir 13 milljón krónum hærri fyrir árið 2012 en kostnaður við sorphirðu fyrir árið 2011. Þá er útboðsupphæð fyrir fimm ára tímabil miðuð við núverandi sorpmagn en margt bendir til að það kunni að aukast á tímabilinu með tilheyrandi viðbótarkostnaði.
Bæjarráð felur framkvæmdastjóra sveitarfélagsins að leita samninga við núverandi sorphirðuaðila um framlengingu samnings til 1. júlí 2012. Bæjarráð felur tækni- og veitustjóra að vinna að nýju útboði.

Tillagan var borin undir atkvæði og samþykkt með tveimur atkvæðum gegn atkvæði Eggerts Vals Guðmundssonar, S-lista.

Lögð var fram eftirfarandi bókun Eggerts Vals Guðmundssonar, S-lista, Helga S. Haraldssonar, B-lista, og Þórdísar Eyglóar Sigurðardóttur, V-lista:
„Sú tillaga sem hér er lögð fram af meirihluta D-lista, að hafna niðurstöðu útboðs á sorphirðu fyrir sveitarfélagið, er verulega undarleg ákvörðun. Byggð á vangaveltum um hugsanlega galla á útboðinu og aukið sorpmagn í framtíðinni . Einnig eru settar fram tölulegar upplýsingar um hærri kostnað á árinu 2012, en ekkert getið um sparnað upp á 25 milljónir á samningstímanum. Hugsanlegur kostnaður sveitarfélagsins vegna þessarar ákvörðunar er alfarið á ábyrgð meirihluta D-lista“.
Eggert Valur Guðmundsson, S-lista, Helgi S. Haraldsson, B-lista, og Þórdís Eygló Sigurðardóttir, V-lista.

Lögð var fram eftirfarandi tillaga Eggerts Vals og Helga S. Haraldssonar:
„Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda í útboði á sorphirðu í Sveitarfélaginu Árborg.
Greinargerð: Bæjarstjórn tók ákvörðun fyrir ári síðan að láta bjóða út sorphirðu í Sveitarfélaginu Árborg í ljósi þess að samningur við verktakann, sem hefur séð um sorphirðuna mörg undanfarin ár var runninn út. Skipaður var vinnuhópur fulltrúa  allra flokka til þess að móta framtíðarstefnu í málaflokknum sem lið í undirbúningi útboðsins. Í framhaldinu var verkfræðistofan Efla fengin til þess að gera útboðsgögn og bjóða út verkið í samræmi við vilja bæjarstjórnar. Niðurstaðan  varð sú að tvö fyrirtæki buðu í verkið, annars vegar Íslenska gámafélagið og hins vegar Gámaþjónustan. Tilboð Gámaþjónustunnar reyndist  mun hagstæðara fyrir sveitarfélagið. Ef miðað er við kostnað undanfarinna ára er tilboð Gámaþjónustunnar mjög hagkvæmt fyrir sveitarfélagið og þýðir í raun sparnað sem nemur um það bil 25 milljónum kr. á samningstímanum. Fyrir liggur einkunnargjöf unnin af fagaðilum vegna tilboðanna og skorar lægstbjóðandi hærra í þeirri einkunnargjöf. Það er því sjálfsagt og eðlilegt að ganga frá samningi við lægstbjóðanda sem allra fyrst enda gert ráð fyrir því að núverandi verktaki ljúki við sinn samning um næstu áramót og nýr verktaki taki til starfa 1. janúar 2012“.
Eggert Valur Guðmundsson, S-lista og Helgi S. Haraldsson, B-lista.

Tillagan var borin undir atkvæði og felld með tveimur atkvæðum gegn atkvæði Eggerts Vals Guðmundssonar, S-lista.

Lögð var fram bókun Eggerts Vals Guðmundssonar, S-lista, og Helga S. Haraldssonar, B-lista:
„Það er algjörlega óskiljanlegt að meirihluti D-lista skuli fella þá tillögu sem hér er lögð fram af undirrituðum fulltrúum minnihlutans, um að ganga til samninga við lægstbjóðanda eftir útboð sem sveitarfélagið stóð fyrir vegna sorphirðu í sveitarfélaginu. Ljóst er að annar tilboðsgjafanna hefur sent frá sér tilmæli um ógildingu útboðsins, sem við nánari skoðun standast ekki  sem rök fyrir ógildingu þess. Útboðsgögn voru unnin af Verkfræðistofu Suðurlands og EFLU verksfræðistofu fyrir sveitarfélagið og eru í samræmi við allar almennar reglur og lög sem um slík útboð gilda. Hefur umsjónaraðili útboðsins hjá EFLU sagt að útboðsgögnin standist alla lagalega skoðun og í þeim felist á engan hátt mismunun gagnvart tilboðsgjöfum. Í útboðsgögnum er m.a tekið fram að þeir bjóðendur sem komi til greina skuli, innan ákveðins frests, sé þess óskað, láta í té ýmsar upplýsingar um viðkomandi fyrirtæki, s.s. starfsleyfi, upplýsingar um tæki, staðfestingu á að fyrirtækið sé ekki í vanskilum með opinber gjöld o.s.frv.
Hvorugur tilboðsgjafa gerði athugasemdir þegar tilboð voru opnuð og báðir aðilar skiluðu inn þeim gögnum sem beðið var um án athugasemda  eftir að tilboð voru opnuð.  Tilboðsgjafar sátu við sama borð allt útboðsferlið.
Leitað hefur verið álits bæjarlögmanns á – Tilmælum um ógildingu útboðs – frá öðrum tilboðsgjafanum og getur bæjarlögmaður ekki gefið ótvíræð svör við því hvort gallar hafi verið á útboðinu eða ekki. Hvergi er heldur til ótvíræður úrskurður í sambærilegum málum en í úrskurði kærunefndar útboðsmála í máli nr. 12/2006 segir: „Það er meginregla í opinberum innkaupum að bjóðendur geta ekki breytt grundvallarþáttum í tilboðum sínum eftir að þau hafa verið opnuð, enda eru slíkar breytingar almennt til þess fallnar að raska samkeppni og fela í sér hættu á mismunun.” Í þessu útboði er ekki hægt að segja, að með því að kalla eftir frekari upplýsingum eftir að tilboð voru opnuð, hafi jafnræði verið brotið þar sem það kom skýrt fram í útboðsgögnum að eftir þessu yrðir kallað og báðir aðilar vissu það og báðir aðilar skiluðu inn umbeðnum gögnum á tilsettum tíma. Í útboðinu sem hér um ræðir var vægi tilboðsupphæðar 80% og vægi annarra þátta samtals 20%, en kallað var eftir upplýsingum vegna þessara þátta við opnun tilboða. Í niðurstöðum þessa útboðs hefur því tilboðsverðið svo mikið vægi að aðrir þættir geta ekki breytt niðurstöðu þess, þ.e.a.s.  hvor tilboðsgjafi skorar hærra eftir að allar viðbótarupplýsingar hafa verið skoðaðar. Það er vægast sagt undarlegt að ganga ekki nú þegar til samninga við lægstbjóðanda á grundvelli þeirra tilboða sem fyrir liggja og einkunnargjafar tilboðsgjafa, samkvæmt umbeðnum upplýsingum sem þeir báðir skiluðu inn“.
Helgi Sigurður Haraldsson, fulltrúi B-lista og Eggert Valur Guðmundsson, fulltrúi S-lista. Þórdís Eygló Sigurðardóttir, V-lista, tók undir bókunina.

Lögð var fram bókun bæjarfulltrúa D-lista:
„Það er ábyrgðarhluti að semja um sorphirðu til fimm ára og binda þannig sveitarfélagið. Nú liggur fyrir álit bæjarlögmanns sem staðfestir að galli kunni að vera á útboðinu. En í áliti bæjarlögmanns segir orðrétt: „Ef að lögmæti útboðsins yrði borið undir framangreinda úrskurðaraðila má færa rök fyrir því að niðurstaðan gæti orðið sú að jafnræði bjóðenda hefði ekki verið gætt með fullnægjandi hætti.“ Sá reiknaði ávinningur sem fulltrúar S- og B-lista nefna er ekki fyrir hendi, þvert á móti er ýmislegt sem bendir til annars.“

Eggert Valur Guðmundsson (S), Arna Ír Gunnarsdóttir (S) og Helgi S. Haraldsson (B) bæjarfulltrúar í Árborg.
Eggert Valur Guðmundsson (S), Arna Ír Gunnarsdóttir (S) og Helgi S. Haraldsson (B) bæjarfulltrúar í Árborg.

Helgi S. Haraldsson bæjarfulltrúi B-lista
Eggert Valur Guðmundsson bæjarfulltrúi S-lista
Arna Ír Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi S-lista