![Handverksmarkaður í Selinu 8. desember Handverksmarkaður í Selinu 8. desember](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/11/handverksmarkadur2.jpg?fit=464%2C308&ssl=1)
Handverksmarkaður verður haldinn í Selinu við Engjaveg á Selfossi laugardaginn 8. desember nk. Þar verður handverksfólk af svæðinu með fallegar vörur til sölu. Á meðal þess sem þar verður á boðstólum er kerti, bútasaumur, skartgripir, trévörur, ilmvörur, barnaföt og margnota dömubindi/innlegg, ljósmyndir, listaverk, prjónavörur, skrautmunir og fleira. Tilvalið er að koma, upplifa smá jólastemningu og versla til dæmis jólagjafir.