Framkvæmdir eru nú hafnar við endurbætur á Mjólkurbúinu í Hveragerði. Ráðast á í múrviðgerðir á ytra byrði hússins, steyptum rennum og þaki. Eitt tiboð barst í framkvæmdina að lokinni verðkönnun og nam það tæpum 12 millj. króna. Var það frá fyrirtækinu M1 ehf. en Kolbeinn Hreinsson mun sjá um framkvæmdina.
Mjólkurbúið í Hveragerði er sögufræg bygging og ein af elstu byggingum bæjarfélagsins, byggt árið 1929 eftir teikningum Guðjóns Samúelssonar, húsameistara ríkisins. Stofnun Mjólkurbús Ölfusinga og bygging hússins markaði upphaf þéttbýlis í Hveragerði. Á undanförnum árum hefur verið unnið að lagfæringu hússins endurnýjun þess að innan og skipt hefur verið um glugga og þeir færðir til upprunalegs horfs.