![Bergljót Arnalds og Hörpukórinn í Selfosskirkju Bergljót Arnalds og Hörpukórinn í Selfosskirkju](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/11/bergljot_arnalds2.jpg?fit=503%2C369&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/11/bergljot_arnalds1.jpg?resize=300%2C300&ssl=1)
Hörpukórinn, ásamt einsöngvaranum Bergljótu Arnalds og hljómsveit, verður með tónleika í Selfosskirkju sunnudaginn 11. nóvember nk. kl. 16:00. Hljómsveitina skipa stjórnandi kórsins, Guðmundur Eiríksson á píanó, Eysteinn Ó. Jónasson á bassagítar, Rúnar Þór Guðmundsson á trommur og Jóhann Stefánsson á trompet. Á efnisskrá tónleikanna eru bæði klassísk lög og dægurlög við undirleik rytmasveitarinnar. Einnig frönsk einsöngslög ásamt lögum eftir söngkonuna Bergljótu Arnalds.