Prufuholur voru boraðar á golfvellinum á Selfossi síðastliðinn mánudag þar sem fyrirhuguð ný Ölfusárbrú á að koma. Starfsmenn Vegagerðarinnar voru búnir að bora átta holur 6–8 metra að dýpt þar sem undirstöður brúarinnar eiga að koma. Verið var að kanna styrk bergsins sem nýja brúin á að hvíla á.