![Umferðarslys á Suðurstrandarvegi Umferðarslys á Suðurstrandarvegi](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/01/logregla3-4.jpg?fit=768%2C512&ssl=1)
Viðbragðsaðilar eru nú við vinnu á vettvangi umferðarslyss á Suðurstrandavegi skammt vestan Herdísarvíkur en þar fór bíll út af vegi og valt. Ökumaður var einn í bílnum og kastaðist hann út úr honum. Verið er að flytja hann með þyrlu á sjúkrahús í Reykjavík. Tilkynning um slysið barst kl. 07:45 og eru viðbragðsaðilar frá Suðurnesjum og Suðurlandi á vettvangi. Einhverjar umferðartafir eru á vettvangi vegna umferðar viðbragðsaðila. Þetta kemur fram á facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi.