![Fjöldi gesta samankominn á sameiginlegum jólabasar kvenfélaga í Flóahreppi Fjöldi gesta samankominn á sameiginlegum jólabasar kvenfélaga í Flóahreppi](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/11/maxresdefault-1.jpg?fit=768%2C432&ssl=1)
Það eru kvenfélög Villingaholtshrepps, Hraungerðishrepps og Gaulverjabæjarhrepps sem stóðu að jólabasar í Þingborg. Viðburðurinn var vel sóttur og margir gerðu góð kaup. Allt fé sem safnaðist rennur óskipt til HSu og er eyrnamerkt sérstökum barkarennum sem fara um borð í sjúkrabifreiðar stofnunarinnar. Von var til að geta keypt að minnsta kosti þrjú tæki en hvert þeirra kostar um 340 þúsund.