![Nöfn þeirra sem létust í brunanum á Selfossi Nöfn þeirra sem létust í brunanum á Selfossi](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/11/bruni_folk.jpg?fit=593%2C359&ssl=1)
Konan sem lést í brunanum á Kirkjuvegi 18 á Selfossi hét Kristrún Sæbjörnsdóttir. Hún var fædd 1. október 1971 og búsett í Reykjavík. Hún lætur eftir sig þrjá syni. Kristrún var gestkomandi í húsinu. Karlmaður sem einnig lést hét Guðmundur Bárðarson, fæddur 29. nóvember 1969, búsettur á Selfossi, ókvæntur og barnlaus. Hann var einnig gestkomandi í húsinu.
Aðstandendur færa viðbragðsaðilum sérstakar þakkir fyrir störf þeirra á vettvangi.