Víðavangshlaup Íslands eða Íslandsmeistaramót í víðavangshlaupum fór fram í Laugardal í Reykjavík 20. október sl. Ræst var á tjaldsvæðinu og hlaupið eftir göngustígum og grasi um tjaldsvæðið og Þvottalaugarnar í Laugardalnum.
Fjórir keppendur af sambandssvæði HSK tóku þátt og unnu öll til verðlauna. Kristinn Þór Kristinsson Umf. Selfoss varð Íslandsmeistari í karlaflokki og þá unnu þrjú systkin frá Garpi til verðlauna. Sveinn Skúli Jónsson var meistari í flokki 13–14 ára stráka, Svanborg Jónsdóttir vann í flokki stúlkna 12 ára og yngri og Sæmundur Ingi Jónsson varð annar í flokki stráka 12 ára og yngri.