![Börn í Mýrdalshreppi vilja kaupa ærslabelg Börn í Mýrdalshreppi vilja kaupa ærslabelg](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/10/077a7578-1024x683.jpg?fit=768%2C513&ssl=1)
Í fundargerð sveitarstjórnar Mýrdalshrepps kemur fram að börn í Mýrdalshreppi hefðu sent bréf með ósk um að keyptur yrði svokallaður ærslabelgur í sveitarfélagið og honum yrði komið fyrir á Guðlaugsbletti. Sveitarstjórnin fagnaði erindinu og „samþykkir að jafna öll veitt framlög til söfnunar á Ærslabelg, allt að einni milljón króna og kosta uppsetningu hans.“