Stóra verkefni allra bæjarstjóra og bæjarfulltrúa er að tryggja velferð sinna samfélaga og fyrst og fremst að veita þá þjónustu sem þeim ber lögum samkvæmt að gera. Elliði Vignisson, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Ölfuss, segir það kannski ekki áberandi en sveitarfélagið sé stærsti atvinnurekandinn á svæðinu. „Við erum stolt af okkar grunnskóla og leikskóla og allri innri gerðinni. Það er eitthvað sem er með þeim formerkjum sem ætíð eru. Atvinnumálin hafa líka verið sett í háan forgang samhliða þessum skylduverkefnum,“ segir Elliði.
Höfnin hefur vaxið mikið
Höfnin í Þorlákshöfn hefur verið að vaxa mikið á seinustu árum og er orðin út- og innflutningshöfn. Hún er jafnframt sú útflutningshöfn sem liggur næst höfuðborgarsvæðinu og með stystu siglingu á Evrópumarkað. Þetta hafa inn- og útflytjendur verið að kveikja hratt á. Ásókn í lóðir og lendur hefur vaxið þar með.
„Við finnum að með frekari vexti og með því að geta tekið á móti stærri og fleiri skipum er nánast bara ímyndunaraflið eitt sem ræður endinum. Þegar þetta fer svo saman með því að hér í Ölfusinu erum við með stærsta jarðhitasvæði á landinu og stærstu ferskvatnslindir á landinu, eigum við gríðarleg tækifæri. Við erum með 730 ferkílómetra af landi í hálftíma fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu og klukkutíma fjarlægð frá alþjóðaflugvelli. Við höfum séð tækifærin mikið hverfast í kringum matvælavinnslu.“ Hann bætir við og segir að megninu af öllum kjúklingum í landinu sé t.d. klakið út í Ölfusinu og sennilega sé um 80% af öllum laxeldisseiðum klakið út í Ölfusinu. „Nú erum við með nýtt svínabú á teikniborðinu. Það verður til þess að megnið af öllum grísum á Íslandi verður gotið í Ölfusinu. Þannig að við erum orðin vagga matvælaiðnaðarins. Þetta sýnir fram á tækifærin. Við sjáum að matvælafyrirtækin og léttiðnaðarfyrirtæki eru að sækja inn á þetta svæði. Þau notfæra sér þá orkuna, vatnið, út- og innflutningshöfnina og nálægðina við markaðssvæðið í borginni. Þannig að við erum að vinna mjög einbeitt í þá átt.“
Bygging fimleikaaðstöðu stærsta verklega framkvæmdin í augnablikinu
Spurður út í framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins segir Elliði að þeir séu í umtalsvert miklum framkvæmdum. „Við erum með íþróttaaðstöðu sem er alveg ótrúleg. Fólk trúir því ekki þegar maður segir hvernig íþróttaaðstaðan er í Ölfusinu. Við erum með þrjá grasvelli, tvo strandblakvelli, útisundlaug og innisundlaug, sjö heita potta og tvo kalda potta, stóran íþróttasal fyrir körfubolta og handbolta og fleiri greinar, átján holu golfvöll og mótocrossbraut. Það má því segja að það sé ótrúlega mikil íþróttaþjónusta. Hún er líka að vaxa núna með aukinni aðstöðu fyrir fimleika. Það er stærsta verklega framkvæmdin í augnablikinu. Við erum líka að deiliskipuleggja bæði iðnaðarsvæði og íbúasvæði. Það er ásókn í lóðir og við viljum geta mætt því. Stórar framkvæmdir eru því tengdar. Höfnin er í stöðugri þróun og miklar verklegar framkvæmdir þarfar þar. Þannig að hjólin snúast hratt. Sorpmálin eru ekki á okkar borði. Þau eru hluti af Sorpsamlagi Suðurlands. Við erum á sama stað og önnur sveitarfélög með það eftir að Nessandur varð úti.“
Höfnin hefur áhrif á stórt svæði
„Við erum glöð og ánægð að finna að áhersla og athygli, sérstaklega nágranna okkar hérna í Árnessýslunni og á Reykjanesinu, liggja nærri okkar um mikilvægi þess að láta höfnina okkar hér vaxa og dafna. Þetta hefur svo mikil áhrif fyrir svo stórt svæði. Þetta yrði í fyrsta skipti í sögu byggðar á Íslandi sem það væri orðin inn- og útflutningshöfn á Suðurlandi. Það er fín höfn í Vestmannaeyjum, en á Suðurlandinu s.s. Íslandsmegin, þá er þetta í fyrsta skipti sem það er komin inn- og útflutningshöfn. Það eru alveg gríðarleg tækifæri og mikilvægt fyrir okkur Sunnlendinga og nágranna okkar að standa saman um uppbyggingu og láta svo saman við það spila nauðsynlegar innviðafjárfestingar eins og í vegaframkvæmdum og þess háttar.“