![Fjölmennt á forvarnarsýningu Lof mér að falla í Árborg Fjölmennt á forvarnarsýningu Lof mér að falla í Árborg](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/10/IMG_7746.jpg?fit=768%2C512&ssl=1)
Talsverður fjöldi fólks var saman kominn á forvarnarsýningu á kvikmyndinni Lof mér að falla sem haldin var í kvöld. Að sýningu lokinni var haldið málþing á Hótel Selfossi. Í samtali við forvarnarfulltrúa Sveitarfélagsins Árborgar kom fram að ekki sé nauðsynlegt að horfa á myndina til að geta nýtt sér málþingið en þar voru m.a. Berglind Guðmundsdóttir og Jóhannes Kr. Kristjánsson með erindi. Einnig voru fulltrúar frá Sveitarfélaginu og Lögreglunni á Suðurlandi.