Úrskurður kjörnefndar, sem skipuð var á grundvelli laga af sýslumanninum á Suðurlandi, hefur verið kærður til Dómsmálaráðuneytisins, vegna íbúakosningar sem fram fór í Sveitarfélaginu Árborg 18. ágúst sl. Það var Aldís Sigfúsdóttir sem lagði kæruna fram.
Í úrskurði kærunefndar sýslumanns kom fram að nefndin hafi komist að þeirri niðurstöðu að tveir annmarkar hafi verið á undirbúningi kosninganna, en að hvorugur þeirra teljist galli sem hefði getað haft áhrif á niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar, hvort sem þeir séu metnir hvor fyrir sig eða sameiginlega.
Í bréfi frá ráðuneytinu til sveitarfélagsins sem lagt var fram til kynningar á fundi bæjarráðs Árborgar 17. október sl. segir: „Ráðuneytið mun nú óska eftir öllum gögnum málsins frá sýslumanni og að því búnu taka afstöðu til þess hvort tilefni sé til þess að óska eftir gögnum frá sveitarfélaginu.“