![Aldís gegnir áfram stöðu bæjarstjóra í Hveragerði Aldís gegnir áfram stöðu bæjarstjóra í Hveragerði](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/09/aldís.jpg?fit=768%2C768&ssl=1)
Aldís Hafsteinsdóttir var nýlega kjörin formaður Sambands íslenskskra sveitarfélaga. Hún hlakkar til að takast á við nýtt embætti. Aldís mun áfram gegna starfi bæjarstjóra í Hveragerði og sinna skyldum formanns samhliða. Fyrri formenn Sambandsins hafa gert slíkt hið sama enda er formaður Sambandsins ávallt í öðrum störfum samhliða formennskunni. Aldís hefur aftur á móti þegar sagt sig frá ýmsum öðrum embættum til að geta sinnt báðum þessum hlutverkum sem allra best.