9.5 C
Selfoss

Sprengingar við Ölfusá hefjast á næstu dögum

Vinsælast

Jarðvegsrannsóknum vegna nýrrar brúar yfir Ölfusá er nú lokið og er gert ráð fyrir að framkvæmdir við undirstöður brúarinnar hefjist í byrjun maí. Þá stendur yfir uppsetning varnargarðs í Ölfusá sem liggur frá eystri bakka árinnar í átt að Efri-Laugardælaeyju. Við enda garðsins verður komið fyrir bráðabirgðabrú, um 40 metra langri, sem nær yfir að eyjunni. Sú brú verður nýtt til að flytja efni og búnað inn á framkvæmdasvæðið þar sem meðal annars verður reistur 60 metra hár turn.

Framkvæmdir við jarðvegsskipti í vegstæði Hringvegar (1) austan Ölfusár eru nú í fullum gangi og hafa gengið vel til þessa. Þau sem eiga leið fram hjá framkvæmdasvæðinu geta fylgst með gangi verksins.

Vinna við vegskeringar vestan árinnar er einnig hafin og er því búið að loka tveimur göngustígum í Hellismýrarskógi. Hjáleið fyrir gangandi vegfarendur er á veginum við árbakkann.

Sprengingar hafts við árbakkann vestan megin munu hefjast á næstu dögum.

Vegagerðin brýnir fyrir fólki að fara með gát við framkvæmdarsvæðið og fylgjast vel með öllum leiðbeiningum og upplýsingum sem finna má á skiltum á framkvæmdasvæðinu.

Vegagerðin beinir einnig þeim tilmælum til vegfarenda, sem þurfa að nota Laugardælaveg til að komast á golfvallarsvæðið, að kynna sér leiðbeiningar vel sem hafa verið og munu verða settar upp þar sem framkvæmdasvæðið skarast við Laugardælaveg. Stór vinnutæki þurfa að eiga þar leið um veginn og því er afar mikilvægt að fyllstu varúðar sé gætt.

Nýjar fréttir