11.8 C
Selfoss

Knattspyrnudeild Selfoss heldur konukvöld

Vinsælast

Konukvöld knattspyrnudeildar Selfoss fer fram miðvikudaginn 23. apríl næstkomandi (daginn fyrir sumardaginn fyrsta). Dagskráin er ekki af verri endanum – fordrykkur í boði CCEP, goodie bag fyrir fyrstu 50 sem mæta.

Laufey Guðmunds veislustýrir af sinni alkunnu snilld og heldur uppi gríðarlegri stemningu, Dísa keyrir upp stuðið og tekur nokkur lög og happdrættið verður á sínum stað með glæsilegum vinningum nú sem áður!

Taktu kvöldið frá, það er frábær skemmtun framundan sem engin ætti að láta fram hjá sér fara!

Glæsilegir kynningar- og sölubásar verða á staðnum frá Motivo, H-Verslun og Tilefni.

Miðasala er á www.svidid.is.

Nýjar fréttir