6.4 C
Selfoss

Konungar sveitaballanna fögnuðu

Vinsælast

Hljómsveitin Skítamórall fagnaði 35 ára afmæli sínu á dögunum með tveimur tónleikum. Annarsvegar í Hofi á Akureyri fyrir viku og svo í Háskólabíói um helgina. Strákarnir sýndu þar og sönnuðu af hverju þeir hafa verið kallaðir „Konungar sveitaballanna“ og hvers vegna hlustendur útvarpsstöðvarinnar FM957 titluðu þá ár eftir ár „Bestir á balli“ á hlustendaverðlaunum stöðvarinnar. Næstu tónleikar strákanna eru „heima” á Selfossi en þeir verða á Sviðinu á Selfossi um hvítasunnuna. 

Skímó 1, 2, 3 og 4

Bílaumboðið Hekla heiðraði piltana fyrir samstarf sem sveitin átti við umboðið og Volgswagen Golf um aldamótin og stillti upp nýjum Volgswagen-bílum fyrir framan innganginn í Hörpu með SKÍMÓ einkanúmerunum sem urðu heimsfræg á Íslandi á gullárum sveitarinnar. Vakti það mikla athygli gesta og kátínu. Gestir tónleikanna gátu gætt sér á „einni með öllu“ því drengirnir létu smíða pulsuvagn frá Bæjarins bestu í anddyrinu og margt fleira var gert í tilefni áfangans. Enda ekkert eins mikið „Selfoss“ og ein með öllu eftir gott ball. 

Ljósmynd: Aðsend.

Beggi í Sóldögg sótti gítarleikarann sinn

Gestir hljómsveitarinnar voru ekki af verri endanum. Bergsveinn „Beggi í Sóldögg“ Árelíusson opnaði gestalistann og söng lag með strákunum en um leið líka lagið Sóldaggarlagið „Svört Sól“ en Gunnar II eða Gunnar Þór Jónsson í Skítamóral spilar með Skítamóral á láni frá Sóldögg og hefur gert í 15 ár. Þá bar til tíðinda þegar Kristján Gíslason, annar bakradda tónleikanna, steig fram og hann og Gunnar Ólason forsöngvari tóku Birtu eða Angel, framlag Íslands í Eurovision árið 2001 en það hafa þeir félagar ekki gert saman á sviði síðan þá.

Beggi tók nokkur lög.
Ljósmynd: Mummi Lú.

Sviðsstjóri gerði allt vitlaust 

Viktor „Rót” Hólm Jónmundarson sviðsstjóri steig fram og söng hinn goðsagnakennda slagara „Þegar ykkur langar” en lagið var „felulag” á vinsælustu plötu hljómsveitarinnar „Nákvæmlega” sem kom út vorið 1998. Viktor hóf feril sinn með Skítamóralsstrákunum en í dag er hanneftirsóttasti sviðsstjórinn í bransanum og varla að Bubbi Morthens fari út í Hagkaup án þess að taka hann með.

Viktor Hólm byrjaði feril sinn með Skítamóral.
Ljósmynd: Mummi Lú.

Patr!k Atla setti allt upp í loft 

Það ætlaði svo allt um koll að keyra undir lokin þegar Patr!k „PBT” Atlason hljóp fram á sviðið í lagið „Ennþá”. Það á sér um það bil 20 ára forsögu því í janúar 2024 söng hann þetta lag í Morgunsjónvarpi Stöðvar 2, þá aðeins 10 ára. Rúmum 20 árum síðan deildi þessi skærasta poppstjarna samtímans í dag sviðinu með Skítamóral. Eftir „Ennþá“ var svo talið í „Skína“ lag ársins 2023 á Íslensku tónlistarverðlaununum og mest spilaða íslenska lagið á Spotify það árið og eitt mesta spilað lagið þar árið 2024.

Patrik Atlason gerði allt vitlaust á tónleikunum.
Ljósmynd: Mummi Lú.

Nýjar fréttir