Hamar og Þróttur mættust í gær í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Unbroken-deildar karla í blaki.
Þróttarar unnu fyrri leik liðanna örugglega 3-0 og áttu heimamenn því harma að hefna í gær og mættu þeir til leiks tilbúnir í verkefnið og unnu fyrstu hrinuna án vandræða 25-16.
Önnur hrina var jafnari framan af en upp úr henni miðri náðu Hamarsmenn yfirhöndinni og unnu örugglega 25-15.
Í þriðju hrinu var jafnt 11-11 en Hamarsmenn skriðu þá hægt en örugglega fram úr og unnu hrinuna 25-19 og leikinn þar með 3-0.
Stigahæstur í liði Hamars var Tomek Leik með 19 stig en í liði Þróttar var það Karol Kubisz með 9 stig.
Vinna þarf tvo leiki til að komast í úrslit. Næsti leikur liðanna er miðvikudaginn 9. apríl kl. 19:30 á heimavelli Þróttara í Laugardalshöll.


