Gengi erlendra vasaþjófa hefur undanfarið farið í reglulegar ferðir á Þingvelli og aðra ferðamannastaði til að stela frá ferðamönnum sem þangað koma. Hefur slíkum tilvikum farið fjölgandi undanfarið og eru þjófarnir þrautþjálfaðir og skipulagðir í aðgerðum sínum.
Morgunblaðið greinir frá þessu.
Einar Á.E. Sæmundsen þjóðgarðsvörður segir í samtali við Morgunblaðið að þjófnaðir á Þingvöllum séu orðnir sífellt algengari. Hann segir að svo virðist sem þjófar geri sér daglega ferð þangað til að ræna ferðamenn, áður en þeir halda á Gullfoss og Geysi til að halda glæpum sínum áfram þar.
Einar segir meðal annars frá þjófum sem staðnir voru að verki á Hakinu en komust undan. Í ljós kom þegar myndefni var skoðað að sama bifreiðin hafði mætt á svæðið fjóra eða fimm daga í röð og alltaf á sama tíma.
„Það var eins og hann væri að stimpla sig inn til vinnu,“ segir Einar.
Einar hefur eftir lögreglu að um sé að ræða skipulagða brotastarfsemi.
„Þessir hópar koma hingað til lands sem ferðamenn, ekki til þess að taka myndir heldur verðmæti,“ segir Einar.
Hann hvetur leiðsögumenn og bílstjóra sem eru í tengslum við ferðahópa til að láta þá vita af þessu ástandi.