2 C
Selfoss

Vegagerðin kaupir Gömlu Þingborg

Vinsælast

Vegagerðin hefur fest kaup á Gömlu Þingborg, sem stendur við Hringveg (1) í Flóahreppi. Kaupverðið er 72,5 milljónir.

Ástæða kaupanna er sú að húsið stendur innan veghelgunarsvæðis núverandi Hringvegar og í væntanlegu framtíðarvegstæði Hringvegar (1). Framkvæmd er fyrirhuguð við breikkun Hringvegar frá Selfossi að Markarfljóti í nokkrum áföngum.

Verkefnið er áætlað á öðru og þriðja tímabili ósamþykktrar samgönguáætlunar 2029-2038. Sem liður í þeim áætlunum var ákveðið að kaupa Þingborg þegar ljóst var að sveitarfélagið Flóahreppur hafði ákveðið að setja húsið á sölu.

Vinna við undirbúning fyrsta hluta framkvæmdarinnar er hafin hjá Vegagerðinni. Á næstu árum mun húsið þurfa að víkja fyrir umbótum á samgöngumannvirkjum sem bæta þannig samgöngur og umferðaröryggi á þessu svæði.

Nýjar fréttir