Eins og komið hefur fram hafa borist ábendingar um lykt og bragð af neysluvatninu í Hveragerði. Unnið er eftir viðbragðsáætlun bæjarins varðandi vatnsveitu og hún virkjuð eftir því sem tilefni er til.
Miðað við fyrstu upplýsingar frá heilbrigðiseftirlitinu er ekki að mælast kólí/ecolí í neysluvatninu. Frá þessu er greint á heimasíðu bæjarins. Á þessum stigum hefur eftirlitið ekkert í hendi um að vatnið sé óneysluhæft út frá gerlafræðilegum viðmiðum. Beðið er eftir niðurstöðum úr öðrum sýnum.
Heilbrigðiseftirlitið hefur staðfest að lykt sé af vatninu. Ph-gildi hafa lækkað í því en er þó innan marka. Það gefur ríkt tilefni til að rannsaka málið þar til orsökin eru ljós að mati Péturs G. Markan, bæjarstjóra Hveragerðisbæjar.
„Unnið er öllum höndum að málinu með starfsfólki bæjarins og fjölmörgum fagaðilum að greina betur orsökina og málið upplýst eftir því sem framvindan skýrist. Við munum greina frá niðurstöðum um leið og þær berast.“
Eins og staðan er í dag benda fyrstu frumniðurstöður ekki til að vatnið sé óhæft til neyslu í Hveragerði.