Íslandsleikarnir verða haldnir á Selfossi helgina 29.-30. mars. Leikarnir eru íþróttaveisla fyrir einstaklinga sem hafa ekki fundið sig í hefðbundnu íþróttastarfi og/eða eru með stuðningsþarfir. Á leikunum verða fimm íþróttagreinar í boði: fótbolti, körfubolti, handbolti, fimleikar og frjálsar.
Hver íþróttagrein er með opna æfingu og mót yfir helgina þar sem öllum er frjálst að mæta og taka þátt. Á þessum æfingum eru margir þjálfarar og markmiðið er að allir fái tækifæri til að taka þátt á sínum forsendum.
„Við viljum endilega hvetja einstaklinga með stuðningsþarfir og foreldra fatlaðra barna að kynna sér dagskránna og taka þátt í þessum skemmtilega íþróttaviðburði,“ segir í tilkynningu frá skipuleggjendum leikanna.
Fyrir þá sem vilja, þá er hægt að gista í skólastofum í Vallaskóla. Forráðamaður/stuðningur/þjálfari eða hver sem þekkir einstaklinginn þarf að gista með. Koma þarf með dýnu og svefnpoka.
Þátttökugjald er 5.000 kr. og innifalið er morgunmatur (lau og sun), hádegismatur (lau), pizzuveisla á laugardagskvöldinu, mótsbolur, sundlaugarpartý, óvæntir gestir og fleira.
Nánari upplýsingar og skráning má finna hér.