3.4 C
Selfoss

First Water lýkur 5,7 milljarða króna hlutafjáraukningu

Vinsælast

First Water, sem sérhæfir sig í sjálfbæru landeldi á laxi í Þorlákshöfn, hefur lokið hlutafjáraukningu að upphæð 39 milljónir evra, sem samsvarar um 5,7 milljörðum króna. Hlutafjáraukningin er leidd af núverandi hluthöfum en þar á meðal eru Stoðir hf., FW Horn slhf., Framherji ehf., Lífeyrissjóður verslunarmanna, Brú lífeyrissjóður,Líra ehf. og LSR.

Traust fjármögnun 

Fyrir hlutafjáraukninguna hafði félagið sótt hlutafé að fjárhæð 122 milljónir evra en hefur nú sótt 161 milljónir evra í hlutafé að fjármögnun lokinni, eða um 24 milljarða króna. Í lok síðasta árs var tilkynnt um 80 milljón evra lánsfjármögnun frá Landsbankanum og Arion banka eða samtals um 12 milljarða íslenskra króna. Félagið hefur þannig tryggt sér fjármögnun sem nemur um 35 milljörðum króna og nemur fjárfesting í verkefninu nú yfir 20 milljörðum króna. 

Hlutafjáraukningin gerir First Water kleift að klára uppbyggingu á fyrsta fasa af sex í Þorlákshöfn og styrkja þannig stöðu félagsins sem leiðandi fyrirtæki í sjálfbæru landeldi á laxi á Íslandi. Áhersla er lögð á hágæða framleiðslu og lágmörkun umhverfisáhrifa – allt lykilþættir í áreiðanlegum og ábyrgum rekstri.

Starfsemi hafin á athafnasvæði First Water

First Water hefur nú þegar selt um 2.000 tonn af hágæða laxi, sem endurspeglar vel möguleika fyrirtækisins til að svara sífellt aukinni eftirspurn á heimsvísu eftir sjálfbærum og umhverfisvænum sjávarafurðum. 

Þegar uppbyggingu verður lokið mun landeldisstöð First Water framleiða um 50.000 tonn af laxi á ári en stöðin verður byggð upp í 6 fösum og komin í fulla vinnslu árið 2030. Framleiðslugeta í hverjum áfanga verður um 8.300 tonn af laxi á ári. Samanlögð fjárfesting í verkefninu mun nema um 825 milljónum evra eða um 120 milljörðum króna en gert er ráð fyrir að þegar starfsemi félagsins verður komin í fulla starfsemi munu um 330 manns starfa hjá félaginu.

Til að tryggja framleiðslugetu til framtíðar hefur First Water gert raforkukaupasamning við Landsvirkjun um raforkukaup upp á 20 MW og gert er ráð fyrir stækkun í 50 MW þegar Hvammsvirkjun verður komin í rekstur. Þá hefur félagið samið við Landsnet um afhendingu orkunnar.

„Þessi fjármögnun endurspeglar mikið traust og trú þeirra sem þekkja okkur best – núverandi hluthafa. Hún gerir okkur kleift að halda áfram að fjárfesta í uppbyggingu á starfsemi okkar í Þorlákshöfn og hraða framleiðslu á hágæða útflutningsvöru. Áætlanir okkar varðandi uppbyggingu hafa staðist og við gerum ráð fyrir að fyrsta fasa verkefnisins ljúki á þessu ári. Við finnum fyrir miklum áhuga á erlendum mörkuðum á hágæða laxi sem framleiddur er fyrir alþjóðlega markaði með nýjustu tækni, í öflugu samstarfi við nærsamfélagið og með sterkri áherslu á ábyrga nýtingu náttúruauðlinda. Umhverfisvernd og strangt gæðaeftirlit eru grunnstoðir í allri starfsemi First Water. Við erum þakklát fyrir þennan öfluga stuðning okkar hluthafa og hlökkum til að nýta tækifærin sem framundan eru, segir Eggert Þór Kristófersson, forstjóri First Water.

Nýjar fréttir