Hugmyndadagar á Suðurlandi í samstarfi við Lóu nýsköpunarsjóð standa fyrir viðburði dagana 1. – 7. Apríl. Boðið er upp á einstakt tækifæri fyrir skapandi einstaklinga, fyrirtæki og sveitarfélög sem hafa áhuga á sjálfbærni, hringrásarhagkerfinu og nýsköpun. Þátttakendur fá innsýn í hönnunarhugsun, vinna saman í teymum og þróa lausnir fyrir raunverulegar áskoranir sem fyrirtæki og sveitarfélög á Suðurlandi standa frammi fyrir. Að lokum kynna teymin verkefni sín fyrir dómnefnd og verðlaunapotturinn hljóðar upp á 400.000 krónur.
Viðburðurinn er opinn öllum áhugasömum, óháð bakgrunni eða reynslu, og leggur áherslu á að stuðla að nýjum lausnum með skapandi og gagnvirkum hætti. Með þátttöku gefst einstakt tækifæri til að vinna með sérfræðingum, tengjast nýjum samstarfsaðilum og hafa áhrif á sjálfbæra þróun á Suðurlandi. Skráning er hafin og eru öll sem hafa áhuga á nýsköpun og sjálfbærum lausnum hvött til að taka þátt. Frekari upplýsingar og skráning á viðburðinn er að finna á vef SASS.