Lögreglan á Suðurlandi hefur gefið út tilkynningu varðandi manndrápsmálið sem hún hefur til rannsóknar.
Þar segir að skömmu fyrir miðnætti í fyrrakvöld hafi lögreglunni á Suðurlandi borist tilkynning um að óttast væri um karlmann á sjötugsaldri sem hafði yfirgefið heimili sitt í Þorlákshöfn fyrr um kvöldið. Lögregla hóf þegar eftirgrennslan og beindist grunur lögreglu fljótt að því að vera kynni um frelsissviptingu að ræða. Maðurinn fannst snemma í gærmorgun utan dyra við göngustíg í Gufunesi í Reykjavík. Hann var þungt haldinn og lést skömmu eftir komu á slysadeild.
Rannsókn málsins er skammt á veg komin og heldur áfram af fullum þunga. Alls hafa átta einstaklingar verið handteknir í þágu rannsóknarinnar en hún beinist að meintri frelsissviptingu, fjárkúgun og manndrápi. Þrír hafa verið látnir lausir.
Tekin verður ákvörðun síðar í dag um hvort krafist verði gæsluvarðhalds yfir hinum handteknu.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi fer með rannsókn málsins en líkt og áður hefur verið greint frá hafa lögregluembættin á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Vesturlandi auk sérsveitar ríkislögreglustjóra einnig komið að henni.
Vegna rannsóknarhagsmuna verða frekari upplýsingar ekki veittar að svo stöddu.