3.2 C
Selfoss

Kröfu Náttúrugriða um ógildingu hafnað

Vinsælast

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfu um að ógilda ákvörðun Orkustofnunar um að veita Landsvirkjun virkjunarleyfi vegna Búrfellslundar, 120 MW vindorkuvers við Vaðöldu í Rangárþingi ytra.

Orkustofnun veitti virkjunarleyfið í ágúst á síðasta ári, en í september kærðu samtökin Náttúrugrið þá ákvörðun og kröfðust þess að hún yrði felld úr gildi. Samtökin töldu meðal annars að þátttökuréttur almennings við mat á áhrifum framkvæmdar og áætlana á óbyggð víðerni og lögbundið valkostamat hafi ekki samrýmst löggjöf um mat á umhverfisáhrifum.

Í niðurstöðum sínum segir meirihluti úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála að ekki yrði séð að neinir þeir annmarkar lægju fyrir sem raskað gætu gildi ákvörðunar Orkustofnunar.

Nýjar fréttir