6.7 C
Selfoss

Nashville Nights á Suðurlandi

Vinsælast

Dagana 27. og 28. febrúar verður Nashville Nights haldið í annað sinn á Suðurlandi. Viðburðurinn verður haldinn í Midgard Base Camp á Hvolsvelli og á Sviðinu á Selfossi. Nashville Nights er einstök tónlistarupplifun þar sem fram koma þrír söngvarar og lagahöfundar frá Nashville ásamt íslensku tónlistarkonunum Önnu og Fríðu Hansen í svokölluðum „Writers Rounds“.

Ljósmynd: Jóhann Þór Línberg Kristjánsson.

Nashville eða „Music city“, eins og borgin er kölluð, er einna þekktust fyrir að vera höfuðborg kántrítónlistarinnar. Meirihluti íbúanna þar eru lagahöfundar og söngvarar, sem margir hverjir semja smelli fyrir og með stórstjörnum, og semja lögin sem fara á flug um netheima og samfélagsmiðla.

Ljósmynd: Jóhann Þór Línberg Kristjánsson.

Á hverjum degi flykkist fólk hvaðanæva að úr heiminum til Nashville til að upplifa ekta „Writers rounds“ á stöðum á borð við The Bluebird Cafe, 3rd & Lindsley, The Listening Room og The Local, og nú er röðin komin að Midgard Base Camp á Hvolsvelli og Sviðinu Selfossi. „Writers rounds“ eru tónleikar, þar sem listamennirnir skiptast á að spila lögin sín, ásamt því að veita áhorfendum innsýn í það hvernig lögin urðu til og ferlið sem þarf til að þau nái eyrum fólks um allan heim. Þetta er fléttað inn í frábæran flutning atvinnusöngvara og lagahöfunda í einstakri tónlistarveislu, í ekta Nashville-stíl.

Ekki láta þennan einstaka viðburð framhjá þér fara!

Nýjar fréttir