Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum, aðalhluti, var haldið í Laugardalshöll helgina 22.-23. febrúar sl. Þrír keppendur frjálsíþróttadeildar Selfoss tóku þátt. Hin unga og efnilega Anna Metta Óskarsdóttir vann bronsverðlaun í þrístökki með 11,33 m löngu stökki þrátt fyrir að vera einungis 14 ára gömul. Hún er nýbúin að setja Íslandsmet í flokki 15 ára þegar hún stökk 11,59 m. Auk þessa keppti Anna Metta í langstökki og stökk hún 5,25m og endaði í 7. sæti. Hjálmar Vilhelm Rúnarsson keppti í kúluvarpi og varpaði hann 7,26kg kúlunni 12,64m og náði 5. sæti; hann var 40cm frá HSK-meti Magnúsar Arons Hallgrímssonar frá 1993. Hugrún Birna Hjaltadóttir stökk 4,97m í langstökki og náði 9. sæti auk þess sem hún hljóp 200m á 28,06sek.
Anna Metta með brons í þrístökki
