5 C
Selfoss

Sigurður Eyjólfur er Grasrótarpersóna KSÍ 2024

Vinsælast

Knattspyrnusamband Íslands veitir árlega Grasrótarverðlaun KSÍ. Þeim er skipt upp í þrjá flokka: Grasrótarverkefni ársinsGrasrótarfélag ársins og Grasrótarpersóna ársins.

Grasrótarpersóna ársins 2024 er Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson. Hann hlýtur nafnbótina fyrir íþróttastarf á Kirkjubæjarklaustri.

Í umsögn um tilnefningu segir m.a.: „Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Skaftárhrepps hefur sýnt af sér ómældan dugnað, ástríðu og útsjónarsemi þegar kemur að uppbyggingu á íþróttaaðstöðu og auknum möguleikum ungs fólks til íþróttaiðkunar á Kirkjubæjarklaustri, þ.m.t. fótbolta.“

Nýjar fréttir