Alvarlegt umferðarslys varð á Þingvallavegi nú í morgun. Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi segir að einn aðili hafi verið í ökutækinu og ekki hægt að segja til um ástand hans að svo stöddu. Rannsókn stendur yfir á vettvangi.
Þingvallavegur er lokaður við Álftavatn á meðan rannsókn stendur.